Ég er búin að lifa í þeirri veiku von núna undanfarið að
Gilsnegger eða hvað hann nú heitir muni koma fram opinberlega
einsog manneskjan bakvið Silvíu Nótt og seigja “DJÓK!! Híjá
ykkur fyrir að trúa þessu bulli í mér.” Að íslendingar séu bara með
sérkennilegan húmor sem hlæja að vitleysunni í honum og hrista
hausinn. Einnig að hann sé bara svo mikill bissness kall og sé
bara að græða og skemmta sér í leiðinni, og hlær svo af öllum
þeim vitskertu sem virkilega taka mark á kauða. En sú von brást
mér heldur betur áðan. Ég var að renna í gegnum
Sirkus Rvk blaðið áðan er ég rak augun í grein og þá runnu á mig
2 grímur. Herre
Gilsnegger erað fara að gefa út bók núna í lok nóvember fyrir
fallegt fólk og þá sem vilja vera fallegir. Þetta er handbók um hvernig á
að skemmta sér, tala við dyraverði og eitthvað álíka og er
eiginlega eingöngu ætluð strákum nema, and I quote “...en það er
líka kafli um hvernig við viljum hafa dömurnar svo bókin ætti að
geta nýst þeim líka.” HA!! Hver er hann að seigja
mér og landanum hvað er fallegt og hvað ekki. Það hafa allir eitthvað til
brunns að bera finnst mér persónulega og eiga flestir eitthvað
fallegt í sér. T.d
eru margir strákar sem mér finnst alveg geggjaðir sem Jovönu
bestu vinkonu minni finnst lítið varið í og svo öfugt, enda
höfum við gerólíkan smekk og þannig er heimurinn. En núna er einhver olíuborinn
dúddi með strípur að seijga fólki hvað er fallegt, semsagt HANN!
Maður verður að vera fallega brúnn, með strípur í hárinu, taka
sirka mikið í bekk og þar fram eftir götunum. Aftur á móti finnst mér
hallærislegt að vera of brúnn á veturna á Íslandi.. allt í lagi
að vera fersklegur en als ekki einsog Mexikani.. jaah nema þú
sért nýlennt/ur frá Mexíkó
Svo finnst mér þessi gaur ekkert
sætur ef útí þá sálma er farið og er ekkert í fari hans sem
heillar mig, það þyrfti að bjóða mér einhverjar milljónir og hús
í Hamptons ef að ég ætti að deita þennan gaur, samt myndi ég
hugsa mig tvisvar um.
Svo er fólk að spurja hann alskonar
spurninga en ég held í alvuru að það sé djók, ég bara neita að
fólki sé alvara.. endilega kíkjið á Sirkus það er á öftustu
síðu. Hann er ávallt
með pistla í Sirkus, og hvað er það?? Ekki finnst vitsmunalegu
fólki svo sem ritsjórum á blaði einsog Sirkus vera vit í
þessu. Æj ég veit
ekki, kannski er þetta einungis bull í mér, en þetta er bara mín
skoðun og ég ætla að vona að ég hafi rétt á henni.
Endilega seigjið mér ykkar skoðun á
málinu ég er forvitinn! Er gaurinn bara að leika eða er hann
alvuru??
p.s. Ég hélt það væri tabú að seigja
hvað maður tæki mikið í bekk, ef gaur myndi koma með þessa pikköp
línu á mig mundi ég fyrst æla á hann og síðan hlæja mig
mátlausa!
Saltkjöt og baunir Túkall